| Í íslensku 7 er engin kennslubók því ætlast er til þess að nemendur hafi lært mest alla málfræði og náð nógu miklu valdi á íslensku til þess að geta tjáð sig um flest málefni á íslensku. Í íslensku 7 velja nemendur sér sjálfir lesefni, eins og bækur, sögur eða fréttir, og kynna svo efnið sem þau lásu fyrir hinum nemendunum. Síðan er efnið rætt í hópi ásamt því að tala um þann orðaforða sem við kemur efninu. Íslenska 7 er því fyrst og fremst ætluð fyrir þau sem hafa lært mest af málfræðinni en vilja æfa sig og nota íslenskuna sína ásamt því að breikka orðaforða sinn. |