Um starfsemi Múltíkúltí

Múltíkúltí er tungumálaskóli sem hefur starfað frá árinu 2009. Markmið okkar er að bjóða upp á vandaða, aðgengilega og hagnýta tungumálakennslu sem eykur möguleika fólks til þátttöku í atvinnulífi, námi og samfélagi.

Námsumhverfið er fjölmenningarlegt og við lítum á fjölbreytileika nemenda sem styrkleika. Virðing, jafnrétti og virk þátttaka eru höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólans.

Við viljum að reksturinn sé gagnsær, að starfið byggist á faglegri ábyrgð og að stöðugt sé unnið að umbótum. Hér birtum við gæðakerfi skólans, niðurstöður námsmats og þjónustukannana, ársreikninga, starfsleyfi, úttekt heilbrigðiseftirlits og persónuverndarstefnu, auk stuttrar lýsingar á samstarfi við opinbera aðila.

Gæðakerfi Múltíkúltí

Gæðastarf Múltíkúltí byggist á reglulegu sjálfsmati, faglegu samstarfi kennara og virkri þátttöku nemenda í þróun kennslunnar.

Gæðakerfið tekur meðal annars til:

  • Reglulegs mats á kennslu og námskeiðum.
  • Nafnlausra kannana meðal nemenda.
  • Faglegs samstarfs og funda kennara.
  • Endurskoðunar námsefnis, kennsluhátta og námsmats.
  • Skráningar og eftirfylgni með ábendingum og kvörtunum.
  • Reglulegrar yfirferðar á námsárangri og námsframvindu.

Gæðastjóri Múltíkúltí er Óskar Kjartansson. Hann hefur umsjón með innra mati og eftirfylgni umbóta í samstarfi við skólastjóra og kennara.

Skjöl:

Þjónustukannanir og raddir nemenda

Við teljum að sjónarmið nemenda séu mikilvægur þáttur í þróun skólans.

Nemendur eru því reglulega beðnir um að leggja mat á kennslu, kennsluefni, skipulag námskeiða og þjónustu skólans. Kannanirnar eru nafnlausar og niðurstöðurnar nýttar til að greina styrkleika og tækifæri til umbóta.

Niðurstöður kennslumats 2026

Árið 2026 voru tekin saman 526 svör úr nemendakönnunum sem náðu til kennslu 20 kennara.

Helstu niðurstöður voru:

MatsþátturNiðurstaða
Skýrleiki kennslu4,60 af 5
Þekking kennara4,61 af 5
Skipulag kennslu4,54 af 5
Gæði kennsluefnis4,45 af 5
Meðmæli með skólanum9,38 af 10
Nemendur sem töldu kennsluhraðann hæfilegan89,3% svarenda

Niðurstöðurnar sýna almenna ánægju meðal þeirra nemenda sem tóku þátt.

Nemendur komu jafnframt með gagnlegar ábendingar um það sem betur mætti fara. Þar má sérstaklega nefna óskir um fleiri samtalsæfingar, aukna hlustunarþjálfun, meiri endurtekningu og skýrari framsetningu málfræðiatriða.

Hvernig nýtum við ábendingar nemenda?

Niðurstöður kannana eru teknar saman og ræddar í gæðastarfi skólans. Þær eru meðal annars nýttar við endurskoðun kennslubóka, þróun viðbótarefnis og skipulag námskeiða.

Áhersla er lögð á að auka tækifæri til virkrar málnotkunar og tengja námið við raunverulegar aðstæður í íslensku samfélagi.

Við lítum á gæðamat sem samfellt ferli þar sem nemendur og kennarar taka sameiginlega þátt í þróun námsins.

Samstarf og samningar við opinbera aðila

Múltíkúltí hefur víðtæka reynslu af samstarfi við opinberar stofnanir, fyrirtæki og aðra aðila um tungumálakennslu og fræðslu fyrir fullorðna.

Samstarfið felur meðal annars í sér íslenskukennslu fyrir starfsfólk, sérsniðin námskeið og fræðslu sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa.

Ársreikningar

Við leggjum áherslu á ábyrgan rekstur og gagnsæi í fjármálum. Hér má nálgast ársreikninga félagsins.

Starfsleyfi, úttektir og persónuvernd

Starfsleyfi og úttektir

Persónuvernd

Ábendingar og kvartanir

Við hvetjum nemendur og samstarfsaðila til að koma á framfæri ábendingum um þjónustu og starfsemi skólans.

Ábendingum og kvörtunum er tekið með trúnaði og leitast er við að leysa mál með sanngjörnum og gagnsæjum hætti.

Nemendur geta leitað til kennara, skrifstofu eða skólastjóra. Ef ágreiningur leysist ekki með aðkomu skólastjóra má vísa honum til stjórnar félagsins.

Ábendingar eru jafnframt mikilvægt innlegg í reglulegt gæðamat skólans.

Ábyrgð og frekari upplýsingar

  • Skólastjóri og framkvæmdastjóri: Kjartan Jónsson
  • Gæðastjóri: Óskar Kjartansson
  • Rekstraraðili: Múltíkúlti-íslenska ehf.
  • Vefsíða: www.multikulti.is

Upplýsingar á þessari síðu eru uppfærðar eftir því sem nýjar skýrslur, niðurstöður og gögn liggja fyrir.